top of page

Dægradvöl

 

Boðið er upp á dægradvöl frá kl. 13-16. Samvinna er á milli leikskólans og Grunnskólans og fer dægradvölin fram á leikskólanum Grænagarði.

Stefna skólans er:
- að tryggja börnum á aldrinum 6 - 8 ára áhugaverða, skemmtilega og örugga dvöl í skólanum að lokinni hefðbundinni kennslu.

Markmið með starfinu í Dægradvölinni eru fyrst og fremst
- að nýta leik sem mikilvæga uppeldisaðferð.
- að virkja skapandi hugmyndaflug sérhvers barns á þess eigin forsendum.
- að kenna börnunum uppbyggileg samskipti við önnur börn og fullorðna.
- að kenna börnunum kurteisi og snyrtimennsku í allri umgengni.

 

bottom of page